17júní
nú hef ég ekkert annað að gera en að sýna myndina af tilvonandi tónleikahöll hér á borgarfirði..rauði hringurinn er í kringum hana..en græni hringurinn er í kringum húsið mitt
13júní
jæja..ósköp lítið að frétta...nema náttúrulega bara það að það er uppselt á tónleikana í bræðslunni.
Ég hef tekið eftir því núna eftir að HM byrjaði..hversu mikil andstyggð fólk sé á Peter mínum Crouch...þó eru menn eins og ég og Olgeir Pétursson sem standa við bakið á honum í gegnum súrt og sætt
Hérna er Crouchinn að sýna mönnum hvernig eigi að gera þetta
07júní
hahah ég var á undan Hörpu að gera myndbandið..frá tónleikum hljómsveitarinnar minnar....
HÉRog endilega commenta..og panta miða hér á næstu tónleika sveitarinnar!!!!!
29maí
svo má ég til að sýna ykkur..eina græju sem við Hlynur fundum á netinu og hlynur varð svo æstur að hann pantaði sér eina svona græju
http://www.sharperimage.com/us/en/catalog/product/sku__WW258svo ef þið viljið sjá videó af þessu kvikindi þá klikkið þið bara á Video þarna fyrir neðan og klikkið sva 128k sem stendur við Windows media playerinn
29maí
já það er hætt við því að Jón á Sólbakka myndi reka upp mikið öskur ef hann frétti hvað ég hafi verið að panta mér á ebay áðan..2 úr með innbyggðum talstöðvumm..svo maður vitni í Jón"Óskapleg tækni er þetta"..kostuðu stöðvarnar 1800 krónur og ég fæ þær sendar frá Hong kong..takk fyrir
22maí
afhverju þarf lífið að vera svona????...Mér hefur sjaldan liðið svona eins og mér líður núna..
Loksins er hann Pési okkar fundinn...ég er eiginlega hálf orðlaus þannig að það verður að afsaka ef bloggið er eitthvað skrýtið..Ég var í allan gærdag að keyra um á Land Rovernum og ferja göngufólk...svo líður á daginn og þegar ég er að keyra síðasta hópnumaftur til baka í stjórnstöð fæ ég þær fréttir að hann væri fundinn og ekki á lífi....Spennufallið hjá mér varð svo gríðarlegt að það komu örfá tár..svo biðum við og biðum eftir að mennirnir sem náðu í hann kæmu með hann og þegar þeir komu með hann upplifði ég tilfinningu sem ég vil aldrei upplifa aftur og mig langaði svo að fara að hágrenja en ég gat það ekki...að þurfa að bera látinn mjög náin vin sinn er eitthvað það allra erfiðasta sem hægt er að hugsa sér um....
Svakalega verður skrýtið næst þegar að maður kemur inn í bónus þá er engin pési sem er að raða í hillurnar og öskrar "hæ bikki"...
Ég kynntist Pésa fyrst á Esso mótinu 2000 þá sváfum við hlið við hlið og man ég einn morgunin þá vöknuðm við í faðmlögum..þá hefði hann tekið hendina mér og lyft henni yfir sig og svo faðmað mig að sér..hehe þetta lýsir Pésa í fáum orðum og er ég stoltur að hafa notið þess heiður að hafa þekkt Pésa minn og sendi ég fjölskyldu hans samúðarkveðjur
19maí
krakkar frá borgarfirði 87-88...munið þið þegar við keyptum hamsturinn til að geyma í skólanum..en gátum það svo ekki sökum ofnæmis kennara..og hallveig tók hann með sér heim og það næsta sem við fréttum af honum var að hún væri búinn að geyma hann ofaní frystikistunni hjá sér í viku..gaddfreðinn
17maí
jæja alltaf vill maður prófa eitthvað nýtt og nú er það þessi síða..
Nú verður fyrsta bloggið ekki skemtilegt..Sökum þess að Góðvinur minn Pétur Kjerúlf er týndur og búinn að vera í nokkra daga....
Ég fór á Sunnudags klukkan 20:00 uppí Egilsstaði í stjörnstöð og þar þurftum við að bíða þartil klukkan 01:00 og vorum við komnir á áfanga stað klukkan 02:30....
við byrjuðum klukkan þrjú að leita gangandi og hættum ekki fyrr en klukkan 10:00 um morguninn..þá fórum við beint í að leita á fjórhjólum og sexhjólum og hættum við þegar klukkan var orðin 15:30. sjitturinn hvað ég var orðin þreyttur þá og þegar við komun aftur í stjórnstöð klukkan 16:00 byrjuðum við að taka saman dótið henda hjólinu á kerruna og héldum heim..nú veit ég eiginlega ekki hvað ég á að segja meira er eiginlega hálf orðlaus..bara það hugsum fallegar hugsanir til Pésa okkar og vonum að hann finnist sem fyrst